Samantekt um þingmál

Háskólar og opinberir háskólar

536. mál á 151. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að jafna möguleika þeirra framhaldsskólanema sem ljúka prófi af þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla til háskólanáms.

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð er til breyting á aðgangsskilyrðum í háskóla þannig að í staðinn fyrir að nemendur skuli fyrst og fremst hafa lokið stúdentsprófi kemur nýtt skilyrði um að nemendur skuli hafa staðist lokapróf frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi. Með þessari breytingu ættu aðgangsskilyrði að háskóla að vera í samræmi við hæfni, færni og þekkingu nemenda en ekki vera hindrun fyrir þá sem hafa staðist annað lokapróf á þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla að hefja nám á háskólastigi.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um háskóla, nr. 63/2006.
Lög um opinbera háskóla, nr. 85/2008.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum sem ekki var ætlað að hafa efnisleg áhrif.


Síðast breytt 12.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.